Hrafnhildur Halldórsdóttir

Fréttatilkynning/Pressrelease

  

 

Laugardaginn 12..júlí kl.16.00 opnar sýningin “Look out for my Love, it´s in your neighbourhood” í Gallerí Hlemmi. Þetta er fyrsta einkasýning Hrafnhildar Halldórsdóttur hér á landi, en hún er búsett í Glasgow þar sem hún útskrifaðist frá Glasgow School of Art árið 2001. Hrafnhildur hefur sýnt víða undanfarin ár (Tramway og Project Room/ Glasgow, Royal Hibernian Academy/Dublin, Fotografisk Center/ Kaupmannahöfn  og NIFCA project space/Helsinki) en seinast var henni boðin þáttaka í Multiples x 7 í Dublin og framundan er tveggja manna sýning i Changing Room, Stirling, Skotlandi.

 

Sýningin samanstendur mestmegnis af verkum á pappír  unnin útfrá áhuga á vinnuprósess sem einfaldan metafór (= myndlíking) fyrir hvernig við impróviserum (það sem samið er á stundinni) okkur leið gegnum lífið. Efnislegu viðbrögðin byggjast á  andstæðum sem reglu/óreglu, frelsi/takmörkun, fullkomnun/ófullkomnun og á milli þessara andstæðna liggur sjálfur gjörningurinn og sýnir okkur hvað gerist þegar við tökum ákvarðanir um hvað á að gera og hvert á að fara næst, um impróvísasjón og um að sætta sig við þau mistök sem hún inniber.

 

Stutt af The British Council