Hún var alin upp við hljóð
sem einkenna og skýrgreina hænsnaþjóð
gaddurinn fékk til geymslu jóð
uns griðum náði pútna
móðurnefna og föðurfól
fá sín gjöld um síðir
upp því hana hani ól
með hænsnfrú sinni allmörg jól
af hænsndóm og siðum hún fór öll út að tútna
henni kenndi að gala gól
en varnað var henni mannamáls
og mannasiða - hroka prjáls
og ekki var í henni arða brjáls
er fundu hana og um forvitnuðust lýðir

“of nam hjá fiðurfé og van”
Faðir og móðir lýstu frati á oss
fleygðu á gadd og gengu svo í dans
fiðurfugl góður líkn þá léði oss
lífspeki og aðferðarfræði nam ég hans.
Lærði hjá hænsnum of og van.

Hænsleg skil nam ég boðs og banns
og beisk ólíkindi ofs og vans
og leyndardóm fiðraðs afs og ás
upp þá reis múrinn tegundalás
en möguleikar maka sig við þinn markaða bás

“of nam hjá fiðurfé og van”
diktur um verksins aðskiljanlegu náttúru
samkvæmt
formúlu
Laxness

Megas