Fréttatilkynning

 

PORTRET AF ÁNAMÖÐKUM

"Í harðri samkeppni um athygli til dæmis á fjölmiðlamarkaði hafa glansmyndir af yngismeyjum verið næsta traust söluvara. Til þessa hafa fáar myndir af rennilegum ánamöðkum prýtt forsíður dagblaða og tímarita en hver veit nema á næstunni sé breytinga að vænta hvað það varðar. Ungur listamaður fetar um þessar mundir ótroðnar slóðir í listsköpun sinni þar sem viðfangsefnið er dulúðugar ljósmyndir af ánamöðkum." 
                                                                                            (úr texta í sýningarskrá, eftir Hólmfríði Sigurðardóttur líffræðing og ánamaðkaaðdáanda)

Laugardaginn 9.mars kl 16:00 opnar Jóhannes Atli Hinriksson ljósmyndasýningu í galleri@hlemmur.is. Jóhannes Atli útskrifaðist úr skúlptúrdeild Listaháskóla Íslands 1997. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14:00 - 18:00, og stendur til 30. Mars n.k.